Vinsælasta kerfi landsins fyrir íþrótta- og tómstundastarf

Einfaldaðu skipulag, samskipti, greiðslur til félagsins og fáðu betri yfirsýn yfir reksturinn með Abler, allt á einum stað í appi og veflausnum sem þjálfarar, iðkendur, foreldrar og starfsmenn geta reitt sig á. Gerum gott starf betra - íþróttir skipta máli!

Yfir 1.000 framsýn og drífandi félög nýta sér stafrænar lausnir Abler
logo-1
logo-2
logo-3
logo-4
logo-5
logo-6
logo-7
logo-8
logo-9

Auktu skilvirkni og lyftu þínu félagi á hærri stall

Með því að innleiða Abler bætir þú vinnuumhverfið, eykur framleiðni og sjálfvirknivæðir innheimtu. Abler býður upp á alhliða lausnir til að hjálpa félögum að skara fram úr.

Skipuleggðu liðið þitt á auðveldari hátt

Með Abler verður umsýsla liðsins leikur einn. Búðu til og deildu dagskrám fyrir tímabilið, æfingaráætlunum, leikjum eða viðburðum fyrir einstök lið og hópa. Í Abler er hægt að greiða með einum smelli, sem gerir innheimtu skilvirka og léttir sjálfboðaliðum sporin.

Netverslun og skráningarkerfi sem nær frábærum árangri í sölu og innheimtu

Deildu og seldu námskeið og þjónustu á sérsniðinni lendingarsíðu fyrir þína starfsemi. Hvort sem það eru æfingagjöld, áskriftir, viðburðir, búnaður eða varningur, þá munu félagsmenn hafa aðgang að einni verslun með allt sem félagið þitt hefur upp á að bjóða. Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina og náð frábærum árangri í sölu og innheimtu gjalda og áskrifta með Abler vörufjölskyldunni.

Umsýsla félagsins verður hægðarleikur

Abler veitir þér fulla yfirsýn yfir skráningar, félagsmenn, viðburði félagsins og fjárflæðið á ofureinfaldan hátt. Stjórnendur geta sýslað með viðburði, tekið út skýrslur og framkvæmt magnaðgerðir og stutt við starfsemi félagsins með skilvirkum hætti. 

Aldrei missa aftur af viðburði

Notendavæn lausn Abler sameinar alla fjölskyldumeðlimina á einum reikningi. Tengdu leikmennina við liðið sitt og öðlastu hugarró við að vita nákvæmlega hvað er að gerast og hvar eigi að skrá sig.

Phone Icons
May 19th feed
May 20th feed

Treyst 
af 
yfir 
1.000 
framsýnum 
félögum 
um 
allan 
heim 

Innheimtan hjá okkur hefur batnað til muna síðan við tókum Abler í gagnið. Meðlimir fá meldingu í gegnum appið og með tölvupóstum og ganga hratt og vel frá greiðslum. Þetta hefur bætt greiðsluflæðið okkar og auðveldað mín daglegu störf umtalsvert.

Quote Image

Ágúst Jensson

Framkvæmdastjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar

Abler kerfið hefur skapað góða tengingu á milli félagsins, þjálfara, iðkenda og foreldra. Það er algjör lykilforsenda í þeim frábæra árangri sem náðst hefur hjá Þrótti

Quote Image

María Edwardsdóttir

Framkvæmdastjóri Þróttar

Abler hefur lyft grettistaki þegar kemur að samskiptum forráðamanna og þjálfara. Þá gengur innheimta æfingagjalda mun hraðar fyrir sig en áður og vanskil hafa að sama skapi minnkað til muna.

Quote Image

Olga Bjarnadóttir

Framkvæmdastjóri Gerplu

Nýstárlegar lausnir fyrir félagið

Allt á einum stað

Samræmd stjórnunarsvíta Abler sameinar allt á einum stað fyrir félagið og uppfærir upplýsingar á augabragði í öllum notendaviðmótum.

Viðeigandi upplýsingar fyrst

Sérsniðin dagskrá, skilaboð og upplifun sem setur í forgrunn upplýsingarnar sem eru mikilvægastar fyrir þig. Upplýsingar sem skipta minna máli eru hafðar aðgengilegar í bakgrunni. Þetta stuðlar að hárri og hraðri notendatíðini.

Umsjón með fjármálum félagsins

Fylgstu með greiddum og útistandandi reikningum eftir liði og leikmanni. Leitaðu í færslusögu, notaðu afslætti og endurgreiddu á auðveldan máta.

Deildu gögnum og þjálfunaráætlunum

Hýstu og deildu þjálfunarnámsskrá á margmiðlunarsniði fyrir aukna þátttöku leikmanna og foreldra.

Gagnadrifin framþróun

Mældu þátttöku notenda, hvaða þjálfarar eru að skila flestum iðkendum upp flokka og greindu tækifæri til að bæta frammistöðu félagsins með gögnum.

Verslun sem er sýnileg öllum

Hannaðu sérsniðna lendingarsíðu fyrir meðlimi í áskrift, sérstaka viðburði, búnað, söluvarning eða aðra þjónustu sem er í boði fyrir notendur þína.

Mannvirkja- og svæðastjórnun skilvirkari

Gerðu sýnilegt hvað er í gangi á völlum, sölum, fundarherbergjum og svæðum félagsins á einum stað. Fylgstu með bókunum, mætingu og nýttu svæði til aukaæfinga þegar viðburður fellur niður.

Prófaðu Abler

Þarftu að stofna lið eða vill þitt félag byrja?

Leiddu saman leikmenn, foreldra og þjálfara með einföldu innleiðingarkerfi Abler.