Flokkar, hópar og lið

Með skilvirkri viðburðadagskrá, samskipta- og greiðslulausnum tryggir þú að allir í þínum hópi viti hvar og hvenær eigi að mæta, hvar sé hægt að skrá sig og hvenær eigi að greiða. Frábært tól fyrir þjálfara, sjálfboðaliða, iðkendur og foreldra.

Hátt flækjustig? ekki málið!

Interface graphic showing the creation of a team using Abler’s batch selection

Skiptu iðkendum í mismunandi lið og æfingahópa

Með Abler er auðvelt að flokka iðkendur og þjálfara í lið og undirhópa. Á A-liðið að spila á öðrum tíma en B-liðið? Sveigjanleg lausn Abler leysir hátt flækjustig og miðlar upplýsingum til notenda á þjónustuvænan máta.

Interface graphic showing the easy sorting of a player from one team to another team with Abler

Breytingar með einum músasmelli

Færðu iðkendur á milli liða eða leyfðu lánsmanni að æfa upp fyrir sig á þriðjudögum. Lausnir Abler ráða við hátt flækjustig og halda öllum notendahópum upplýstum um breytingar í rauntíma.

Allir vel upplýstir

Interface graphic showing an Abler event update for a scheduled training that is cancelled due to a thunderstorm

Skilvirk tímaáætlanagerð og upplýsingamiðlun

Stundum breytast áætlanir og það þarf að láta alla vita. Með sameinuðu kerfi Abler verður liðið þitt meðvitað um breyttar upplýsingar fyrir viðburði með sjálfvirkum tilkynningum og öruggu skilaboðakerfi fyrir liðið, sem tryggir að allir vita hvar og hvenær á að mæta.

Interface graphic showing an Abler push notification for a recently-created team event

Áreiðanleg afhending og hugarró

Njóttu þess að vita að breytingarnar þínar eru sjálfkrafa sendar notendum þínum reglulega og af nákvæmni. Sendu sérsniðnar tilkynningar ef þörf er á áminningu og upplifðu hugarróna sem fylgir því að vita að allir hafi aðgang að réttum upplýsingum.

Aðrir eiginleikar sem þú munt elska…

Fylgstu með mætingum og kallaðu eftir mótagjöldum

Sjáðu væntanlega mætingarstöðu leikmannanna í rauntíma í gegnum „Svar óskast“ þjónustu Abler. Gefðu sjálfboðaliðum aðgang að tækni sem hjálpar þeim að innheimta gjöld á gagnsæjann og skilvirkan máta.

Fáðu lánaða leikmenn og iðkendur úr öðrum flokkum félagsin

Einstakur sveigjanleiki með því að geta fengið leikmenn að láni úr öðrum liðum og flokkum innan félags á skilvirkan og þægilegan máta.

Tengingar við mótakerfi KSÍ og HSÍ

Beintengingar við mótakerfi sérssambanda auðvelda þér vinnuna - fáðu leikina beint í dagatalið og fáðu uppfærslur sjálfkrafa við breytingar mótastjóra.

Láttu kerfið vinna fyrir þig á meðan þú gerir aðra hluti

Eftirfylgni og sjálfvirkar tilkynningar og áminningar um liðið. Vertu viss um að allir séu á sömu blaðsíðu, allir skrái sig á mótið fyrir tiltekin frest með sjálfvirkum tilkynningum og áminningum.

Miðlaðu efni og æfingum

Stilltu æfingaáætlun liðsins í samræmi við þína áætlun og þarfir leikmanna þinna. Sendu þeim æfingaáætlun eða myndband af æfingu.

Sendu skrár og myndir

Veittu leikmönnum þínum aðgang að margmiðlunarþjálfunarefni með einföldum viðhengjum.

Abler Classes (Tímabókunarkerfi)

Deildu upplýsingum með meðlimum og gerðu þeim kleift að skrá sig á opin námskeið, tíma og sérstaka viðburði.

Algengar spurningar

Lærðu meira um hvernig Abler getur hjálpað þér að hafa umsjón með liðinu þínu

Aðalfókus Abler er að gera umsjón liðsins skilvirkari. Þegar þú getur flokkað fjölda meðlima í einu, stofnað hópa og undirhóp á auðveldan hátt og sent tilkynninar á alla meðlimi jafnt sem hluta þeirra, þá muntu endurheimta tíma sem þú getur frekar varið í íþróttirnar og að byggja upp félagsmennina.

Algjörlega! Hvort sem þú leiðir klúbbinn eða þjálfar liðið þá var Abler hannað til að hægt sé að klára uppsetningu tímabilsins í einni hendingu. Coach HQ og Club HQ gáttirnar þýða að það er einfalt og auðskilið hvernig á að skrá leikjadagskrár, mót, æfingabúðir og fleira fyrir liðin sín.

Algjörlega! Hvort sem þú ert sjálfboðaliði, þjálfar liðið eða stjórnar félaginu þá er auðvelt að nota lausnir Abler til að skipuleggja starfið og kalla eftir skráningum og greiðslum.

Einfalt og sanngjarnt verð

Abler Basic

Allt sem þarf til að byrja, hvort sem um er að ræða stakt lið eða lítið félag, allt á einum stað.

Primary features

  • Tímaáætlanir
  • Samskipti
  • Greiðslur

Tools included

  • Abler app
  • Coach HQ
  • Club HQ

Limits

Abler Pro

Fyrir félög sem eru að leita að öllu sem boðið er upp á í grunnþrepinu en vilja líka nýta sér umfangsmeiri virkni og fjölbreyttari greiðslulausnir, allt á einum stað í kerfi sem er einfalt að nota.

Primary features

  • Allt í Basic
  • Fjölbreyttir greiðslueiginleikar
  • Ítarlegar gagnagreiningar
  • Tímaáætlanir fyrir námskeið og skráningar

Tools included

  • Abler app
  • Coach HQ
  • Club HQ

Limits

Abler Enterprise

Hversu mikla töfra þarftu? Fyrirtækjaáætlunin okkar er ætluð félögum með allt að 50.000 meðlimi og er sérstaklega aðlöguð að þínum þörfum. Hafðu samband við okkur fyrir frekari upplýsingar.

Primary features

  • Allt í Basic + Pro
  • Sérsniðin þróun
  • API eiginleikar

Tools included

  • Abler app
  • Coach HQ
  • Club HQ

Limits